| Um
Okkur
Sumir
óþekktir rithöfundar hafa ekki átt tækifæri á að deila
verkum sínum með öðrum á annan máta en að gefa út bækur sínar sjálfir eða að
öðrum kosti borga háar peningaupphæðir til þess
að fá bækur sínar útgefnar. PublishIslandica telur
þetta ekki vera réttlátt. Fyrirtækið
er andsnúið því að krefjast greiðslna frá
rithöfundum. Í staðinn greiðum við okkar höfundum,
punktur. Við greiðum þeim jafnvel litla upphæð fyrirfram
til þess að undirstrika að það er útgefandinn en ekki höfundurinn sem ábyrgist kostnaðinn af því
að gefa út nýja bók. Stofnendur þess afréðu
að vel skrifuð bók er þess virði að
vera gefin út ef höfundurinn er fær um að sannfæra
þá um að hið minnsta fræ sé til staðar til
markaðsetningar hennar og að það sem höfundurinn hefur
fram að færa
í bók sinni hafi fyrirheit að geyma fyrir framtíðina. Rithöfundar
eru hið frjóa afl sem hefur borið og lyft anda íslensku
þjóðarinnar inn á veg nýrrar aldar. Þeir
eru listamenn í sendiför og með boðskap. Þeir vissu
hver lesendahópur þeirra yrði meðan þeir voru að
upphugsa efni bókar
sinnar. Þeir áttu og eiga sér drauma og PublishIslandica
býður upp á þann akur þar sem draumar þeirra
munu gróa og bera ávöxt, þar sem fólkið
sem rithöfundarnir höfðu í huga mun leita. Með
því að nýta sér nýjustu tækni í
prentun á undan öðrum getur fyrirtækið boðið
upp á að: selja
öll eintök bókar án endurskila. Þar af leiðandi
fer engin bók forgörðum þar sem hvert eintak er prentað
samkvæmt eftirspurn. PublishIslandica nýtir sér einnig nútíma
leiðir í dreifingu bóka. Allir okkar titlar eru fáanlegir
í gegnum helstu bókaverslanir á Íslandi og í
Norður Ameríku í gegnum margar sérverslanir og í
gegnum söluaðila á netinu hér heima og erlendis. PublishIslandica
er hluti af samtökum alþjóðlegra bókaútgefenda,
sem spannar norður álfu, er með aðsetur i Bandaríkjunum,
Bretlandi og á meginlandi Evrópu. Höfuðstöðvarnar
eru staðsettar stutt frá Washington DC, í Maryland, USA. Höfuðstöðvar
fyrirtækisins á Íslandi eru í Kópavogi. Ef
þið hafið spurningar eða athugasemdir fram að færa,
vinsamlegast hafið samband við okkur hjá writers@publishislandica.com. |