| Réttur
höfunda Fyrst
af öllu þá heldur þú höfundarrétti bókarinnar.
Í öðru
lagi þá átt þú rétt á að fá greidd
höfundarlaun af sölu. Við borgum höfundarlaun í prósentum
sem eru: 8 prósent af fyrstu 2,000 þúsund eintökum,10
prósent af næstu 8,000 eintökum, 12,5 prósenta af öllum
eintökum yfir 10,000. Ennfremur
þú ert alltaf hinn eini sanni skapari og eigandi bókarinnar.
Engum er leyfilegt að eiga nokkuð við textann eftir að þú
hefur gert hann endanlegan. Stafræn prentun gerir það tæknilega
mögulegt að gera breytingar á texta hvenær sem er á
vinnslustiginu þess vegna verndar samningurinn þig gagnvart slíku.
Þú ert skapari bókarinnar, höfundur og eigandi hugsmíðinnar.
Þess vegna er nauðsynlegt að þú hafir loka drög
þín örugglega endanleg vegna þess að jafnvel eigandi
hugsmíðarinnar getur ekki breytt neinu í bókinni þegar
hún að endingu er komin í prentun. Að síðustu,
og sem er ekki síst mikilvægt, það
er þinn réttur að hafa gaman af þessu! Það er
mikilvægt að þú njótir þess að vera rithöfundur
sem hefur fengið bók eftir sig útgefna. Að bókin
þín sé komin út og að fólk kaupi og lesi
hana er hrein gleði. Það fær þig til að fyllast
hreykni og fullnægju. Nafn þitt og andlit eru í dagblaðinu,
fólk ræðir um bókina og það sem þú
skrifaðir um hefur áhrif á það: allt þetta er
hrein gleði. Njóttu þess!
|