| Upplýsingar
fyrir höfunda Klikkaðu
hér til að fá nánari upplýsingar Ef
þú vilt senda bókina þína:
- Klikkaðu á hlekkinn
hér fyrir ofan og fylltu út formið á viðeigandi
stöðum.
- Ef
við óskum eftir að fá að sjá handritið í heild sinni munum við biðja þig um að senda það
í pósti.
- Vinsamlegast
segðu okkur í stuttu máli frá hversvegna þú telur að
bókin þín sé góð til markaðssetningar.
- Vinsamlegast
láttu fylgja með stutt æviágrip og tölvupóstfang.
Ef þú óskar eftir að fá handritið endursent
ef við föllumst ekki á tilboð þitt láttu þá
fylgja með frímerkt umslag undir handritið.
- Starfsólk
okkar mun yfirfara handritið og taka ákvörðun um
hvort það hefur þá dýpt og þann
frumleika sem við erum að leita eftir og hvort verkið
falli innan þeirra afmörkuðu flokka sem teknir eru fram hér
á eftir.
- Endanleg
ákvörðun um útgáfu verksins getur tekið allt frá nokkrum vikum til
nokkurra mánaða.
Ef þú hefur þegar sent
handritið: -
Við sendum svar fljótlega, innan nokkurra
vikna ef mögulegt er en annars innan nokkurra mánuða ef
það er mikið annríki.
- Vinsamlega
hringdu ekki. Hverri sendingu verður svarað.
- Þegar
við höfum tekið ákvörðun verður
þér strax tilkynnt um það í gegnum tölvupóst.
- Ef
svarið er neikvætt verður handritið endursent að því tilskyldu
að frímerkt umslag hafi verið sent með undir handritið. Ef
þú hefur ekki látið það fylgja með verða
blöð handritsins send til endurvinnslu.
Hvernig
handritum erum við að leita eftir? Við
erum sérstaklega að leita eftir skáldskap, fræðiritum
og ævisögum, verkum sem segja frá áskorunum raunverulegum
eða ímynduðum. Í skáldskap fjalla flest verk
um hvernig persónulegar áskoranir og erfiðleikar
hafa verið yfirunnar og þess vegna eru flest skáldverk fullgild
til yfirvegunar. Eins er um önnur verk en sagnaskáldskap:
hvernig á að gera bækur, ævisögur, sögu eða sagnfræði
og/eða trúarbrögð, flestar handbækur og heilsufræðibækur
falla undir flokkinn um áskoranir þar sem þær eiga það
sameiginlegt að ákveðin hindrun hefur verið yfirunnin. Við
leitum sér í lagi eftir að finna persónulega reynslu
höfundar fléttaða inn í söguþráðinn vegna þess að þeir persónulegu þættir
eru kryddið sem heldur einbeitingunni fanginni við efni bókarinnar. Síðan
eru það grundvallar staðlar sem bók þarf að bera:
persónugerð þarf að vera raunveruleg og trúverðug,
flæði sögufléttunnar þarf að vera snurðulaust,
tungumálið þroskað og auðugt. Sagan þarf yfirhöfuð
einfaldlega að vera vel skrifuð. Eftir
að við höfum gefið samþykki okkar fyrir útgáfu og báðir aðilar
hafa skrifað undir samning þá óskum við eftir því við höfund að
hann fari enn einu sinni vel yfir handritið, og nú með frískum og
afslöppuðum huga þar sem streituvaldandi óvissu
um framtíð verksins hefur verið aflétt, og gera
endanlegar leiðréttingar þar sem nauðsynlegt er. Taka eitt endanlegt, angurvært faðmlag
utan um efni bókarinnar á þessu síðasta stigi fyrir
fæðingu hennar sem einnig er mjög mikilvækt vegna þess
að þegar endanlegt uppkast hefur verið sent þá
er það akkúrat það sem það verður, endanlegt.
Í næsta sinn sem höfundurinn sér verk sitt þá
verður það á próförkum og á því
stigi verður eingöngu hægt að gera minniháttar leiðréttingar. Fyrir
flesta höfunda er leiðrétting prófarkanna ánægjulegt verk að takast
á við, því þetta er jú í fyrsta skipti sem þeir
sjá verk sitt verða raunverulegt í formi bókar, í
hönnun, umbroti og öllu útliti. Fyrir suma getur það
verið ógnandi þegar það rennur upp fyrir þeim
að þetta er það sem almenningur mun fljótlega líta
augum. Það er vegna þessa sem það er svo mikilvægt
að höfundur geri allar leiðréttingar á próförkum
af mikilli alúð því að þannig mun bókin að endingu líta út á
prenti. Til þess að
ganga úr skugga um að starfsfólk okkar sem sér um ritsetningu
hafi örugglega sett inn allar leiðréttingar verða prófarkirnar
sendar einu sinni enn til höfundar til endanlegrar endurskoðunar. Þegar við höfum
svo fengið prófarkirnar til baka verður bókin fljótlega tilbúin til prentunar. |