Upplýsingar höfunda

Sendið handrit
Upplýsingar höfunda
Markaðssetning
Réttur höfunda
Algengar spurningar
Hafðu samband við okkur

Gagnlegar vísbendingar

[Upplýsingar] [Áritun bóka] [ Viðtöl og fjölmiðlakynningar ] [Fleiri upplýsingar] [Alþjóðanetið ( internetið) er áhrifamikið ]

Alþjóðanetið ( internetið) er áhrifamikið

Internetið nær til milljóna manna. Með svo mikinn fjölda fólks sem þú getur náð til hlýtur að vera einhver sem finnur þig á netinu.

Búðu til heimasíðu
Gerðu heimasíðu! Ef þú veist ekki hvernig það er gert, lærðu það þá eða reyndu að komast í samband við einhvern sem kann það. Kannski ert þú ekkert kunnugur tölvum eða kannski haldinn tölvuhræðslu en það gæti komið þér á óvart hvað barnið þitt eða barnabarn sem er 14 ára megnar þegar það handleikur lyklaborð á tölvu. Gerðu heimasíðu fyrir bókina þína, eins konar nettengdan fjölmiðlapakka með svipuðum upplýsingum og voru í hinum fyrri, og hafðu link frá síðunni til útgefandans (http://www.PublishIslandica.com) svo fólk geti keypt bókina þína.

Viðhald á heimasíðunni hluti 1
Haltu vefsíðunni ferskri með því að uppfæra hana í hvert skipti sem þú hefur nýjar upplýsingar. Ef þú ætlar að koma fram til þess að kynna bókina og gefa áritanir, lesa upp, gefa viðtal eða annað settu þá tilkynningu um tíma og dagsetningu á vefsíðuna. Ef þú færð umfjöllun í blaði settu þá tilkynningu um viðtalið, í hvaða blaði það birtist og settu síðan allt viðtalið á netið. Því oftar sem þú uppfærir þess oftar mun fólk líta inn á síðuna þína eftir nýjum uppfærslum.

Viðhald á heimasíðunni hluti 2
Vefsíðan er einnig tilvalinn staður til þess að gefa þeim sem heimsækja hana upplýsingar um ný eða væntanleg verk frá þér. Fólki sem líkaði fyrsta bókin þín mun að öllum líkindum vera áhugasamt um þá næstu. Gerðu þér far um að nota vefsíðuna til að kunngera, fjalla um, kynna ný verk sem og hin eldri.

Myndaðu samfélag
Það gæti verið ómaksins vert að bjóða upp á umræðuhópa, tilkynningatöflu eða póstlista þar sem þeir sem heimsækja vefsíðuna geta skipst á umræðu og fylgst með framgangi bókarinnar. Þetta mun gefa þér heilmörg tækifæri, bæði til þess að vera í sambandi við lesendur þína sem og að fá til baka samskipti á vefsíðuna.

Auglýstu vefsíðuna
Vertu viss um það að fólk geti fundið þig. Láttu skrá vefsíðuna í leitarvélar, fáðu hana skráða í skrá nettengdra rithöfunda og fáðu vini þína, kunningja og félaga á netinu til þess að hafa link til þín á þeirra vefsíðu. Þess sjáanlegri sem þú gerir vefsíðuna þeim mun fleira fólk mun heimsækja hana.

Hafðu bókina þína fáanlega á netinu
Það er mjög mikilvægt að gera þeim sem heimsækja vefsíðuna kleift að kaupa bókina þína beint frá vefsíðunni. Besta leiðin til þess að gera þetta er að hafa link frá vefsíðunni til bóksölu útgefandans (http://www.publishislandica.com)