Upplýsingar höfunda

Sendið handrit
Upplýsingar höfunda
Markaðssetning
Réttur höfunda
Algengar spurningar
Hafðu samband við okkur

Gagnlegar vísbendingar

[Upplýsingar] [Áritun bóka] [ Viðtöl og fjölmiðlakynningar ] [Fleiri upplýsingar] [Alþjóðanetið ( internetið) er áhrifamikið ]

Viðtöl og fjölmiðlakynningar

Grundvallarreglan í því að fást við fjölmiðla er seigla. Allir eru að keppast við að ná athygli fjölmiðla, þú þarft að gefa þeim ástæðu til þess að beina athygli þeirra að þér frekar en hinum náunganum. Það er ákaflega mikilvægt að vera fær um að selja sjáfan sig og ef það tekst ekki með góðu vertu þá einfaldlega plága. En vertu þó viss um að vera plága sem beitir réttum aðferðum. Hérna færð þú nokkur heilræði:

Fjölmiðlapakki

Útbúðu fagmannlegan fjölmiðlapakka. Láttu hann m.a. innihalda fréttatilkynningu um útgáfu bókarinnar, æviágrip höfundar, lýsingu á efni bókarinnar. Lista yfir spurningar sem bjóða upp á gott viðtal og lista yfir fyrri viðtöl þín ( hvenær og hvar og afrit af blaða viðtölum/ritdómum/blaðagreinum sem þú hefur fengið). Þú myndir kannski einnig vilja láta eintak af bókinni fylgja með.

Fáðu uppgefin nöfn, myndaðu tengsl
Þegar þú hefur samband við fjölmiðla reyndu þá að fá uppgefin nöfn. Hringdu fyrirfram og reyndu að komast að við hverja þú þarft helst að tala við eða senda erindi þitt til. Það að ná sambandi við réttan aðila getur verið sá þáttur sem ræður úrslitum um að þú fáir umfjöllun. Þegar þú hefur nafn rétts aðila hafðu þá samband við hann og reyndu að koma á gagnkvæmum skilningi ykkar í millum. Þú munt komast að því að þegar þú nærð vinsamlegum samskiptum mun velgengni þín um að fá umfjöllun og að það verði haft samband við þig símleiðis aukast! Ef þeir sem þú þarft að hafa samband við vilja fá að tala út í eitt í gegnum símann leyfðu þeim það. Ef þú hittir þá í eigin persónu, vegna viðtalsins eða vegna einhvers annars, heilsaðu þeim þá með handabandi, þakkaðu þeim fyrir að gefa þér tíma sinn, sýndu þeim áhuga sem persónum en ekki einugis sem fréttamönnum.

Þekktu takmark þitt

Reyndu ekki að koma þér á framfæri við fjölmiðla þar sem bókin þín er ekki viðeigandi. Til dæmis væri lítill tilgangur í því að fá útgáfu sem gefur einungis út vísindaskáldsögur til þess að skoða viktoríönsku ástarsöguna þína. Verðu tíma þínum þar sem honum verður best varið. Hafðu samband við þá sem við á.

Gefðu þeim ástæðu

Vænstu þess ekki að fá viðtal með því eingöngu að segja: „Hæ, ég skrifaði bók." Gefðu ástæðu til fulls áhuga. Útskýrðu hvers vegna bókin þín hafi aðdráttarafl og hvers vegna það væri ómaksins vert að veita henni umfjöllun. Hvort bókin skírskoti til ákveðins hóps, þess sem hæst er á baugi í þjóðfélagslegri umræðu eða fjalli um nýliðna atburði eða atriði. Vertu viss um að ná athygli og gefa þeim sjónarhorn.

Reyndu á vettvangi sem er ekki eins augljós, jafnt og á hinum sem eru augljósir.

Dagblöð, útvarp, sjónvarp, útgáfufyrirtæki . . . eru vettvangir sem eru augljósir. En þú gætir fundið markað á öðrum stöðum einnig. Þú hefur skrifað bók þar sem aðalumfjöllunin er vatnsverndun, hafðu samband við samtök umhverfissinna á staðnum. Þá sem eru sérlega dyggir stuðningsmenn verndunar á ám og flóum og reyndu að fá skrif um bókina eða að það verði að minnsta kosti minnast á hana í næsta fréttabréfi. Atburðarásin í bókinni gerist í Vestmannaeyjum; hafðu þá samband við staðar fréttablaðið eða fréttapistil til þess að fá umfjöllun og  yfirlýsingar um bókina. Aðeins vegna þess að útgáfur beina ekki athygli sinni venjulega að bókum þýðir ekki að þær sýni ekki áhuga þar sem fjallað er um landsvæði  eða málefni sem er innan þeirra umræðusviðs. Taktu í gagnið allan þann markað sem þú getur komið bókinni þinni á. Sérhver sá sem þú nærð að vekja athygli hjá er mögulegur lesandi.

Minntist ég á seiglu?
Ef einn aðili á fjölmiðli hefur ekki áhuga á að vinna með þér reyndu þá að ná sambandi við einhvern annan á þeim sama fjölmiðli. Að finna réttu manneskjuna er aðeins fyrsta skrefið og líka eitt af mikilvægustu skrefunum í að þétta rammann til þess að koma þér á framfæri. Rétta manneskjan verður ekki alltaf sú fyrsta sem þú talar við svo vertu þolgóður.

Spurningar í viðtölum
Ég minntist á það áður að láta fylgja með í fjölmiðlapakkanum sýnishorn af spurningum fyrir viðtalið. Þegar þú velur spurningarnar gerðu þér þá far um að velja svörin einnig. Æfðu þau og vertu viss um að koma þeim vel til skila, sérstaklega í útvarpi og sjónvarpi þar sem fólk mun í reynd heyra og sjá þig gefa svörin.Að hafa góðar spurningar er áríðandi. Gakktu úr skugga um að spurningarnar séu athyglisverðar, skemmtilegar, hnitmiðaðar og vertu viss um að þær nái yfir öll þau atriði sem þig langar til að komi fram.