Upplýsingar höfunda

Sendið handrit
Upplýsingar höfunda
Markađssetning
Réttur höfunda
Algengar spurningar
Hafðu samband við okkur

Gagnlegar vísbendingar

[Upplýsingar] [Áritun bóka] [ Viðtöl og fjölmiðlakynningar ] [Fleiri upplýsingar] [Alþjóðanetið ( internetið) er áhrifamikið ]

[Áritun bóka: Hvernig á að byrja][ Hvernig er hægt að gera áritunina árangursríka] [Þarflegar upplýsingar] [Fleiri hugmyndir]

Áritun bóka

Ein af frábærum leiðum til þess að kynna bók er sú að vera sjáanlegur. Það er þá venjulega með því að árita eða lesa upp úr bókum. Þannig uppákomur bjóða upp á tækifæri til að að selja bækur sem og að kynna sig og er einnig góð leið til þess að komast í nálægð við lesendur..

Hentug staðsetning til að áritunar bóka er í bókabúðum. Höfundur gæti mælt sér mót við framkvæmdastjóra verslunarinnar og haft meðferðis eintak af bók sinni. Útskýrt fyrir honum að þú sért rithöfundur, ađ þig langi til að kynna bókina þína og þér þćtti vænt um að fá að koma í kring áritun á bókinni í versluninni.

Þegar bókaverslunin hefur samþykkt að veita leyfi til áritunar, þá er nćst ađ ganga úr skugga um að áritunin verði nægilega vel auglýst. Vertu viss um að bókaverslunin panti nógu mörg eintök af bókinni vegna áritunarinnar. Óskaðu eftir því að bækurnar verði staðsettar á sýnilegum stað nálægt afgreiðsluborðum vikuna fyrir áritun og á einhvern hátt auðkenndar til þess að auka eftirtekt á þeim.

En þú getur ekki reytt þig eingöngu á bókaverslanir til þess að ná árangri

[Til baka]

Kynntu sjálfan þig eins mikið og þú getur. Skrifaðu fréttatilkynningar og sendu til útvarps og sjónvarpstöðva, dagblaða og fréttabréfa. Vertu ákveðinn og fylgdu fréttatilkynningunum eftir með símtali, vektu athygli á þeim og vertu viss um að einhver skoði þær nánar. Útbúðu flugrit eða veggspjöld til þess að kynna bókaáritunina og leitaðu eftir í bókabúðum að þau verði sýnd, einnig ef verslunin setur upp auglýsingu um áritunina gakktu þá úr skugga um að nafniđ þitt sé á henni.

Útvarpstöðvar, útgáfubæklingar og ef til vill sjónvarpstöðvar eru oft tilbúnar til þess að taka viðtal við rithöfunda. Reyndu að fella saman viðtöl við þann tíma sem þú kemur fram opinberlega. Einhver sem heyrir í þér í útvarpinu eða les tilkynninguna þína í blaðinu gæti viljað mæta þar sem þú ætlar að árita.

Þegar að árituninni kemur gerðu þá sjálfan þig sýnilegan komdu t.d fyrir styttu eða einhverju öðru. Ef ekkert annað, hafðu þá stand nærri með bókinni á eða veggspjald. Þegar þú velur styttu reyndu þá að finna einhverja sem tengist innviðum bókarinnar ( t.d. ef þú ert kynna matreiðslubók bakaðu þá köku eftir einni af uppskriftunum í bókinni og bjóddu fólki að smakka!).

Þegar stundin rennur upp leggðu þig þá fram um að eiga vinaleg samskipti við starfsfólk bókaverslunarinnar. Að byggja upp góð tengsl getur fært þér ýmiss konar ávinning hvort sem verður í önnur skipti sem þú áritar þessa bók eða þá næstu bók, til þess að fá að hafa veggspjaldið uppi í einhvern tíma eða til þess að hafa bækurnar í hillum.

Það sem bóksalinn þarf að vita um bókina þína

[Til baka]

Bóksalinn mun þurfa nokkrar upplýsingar varðandi bókina. Hafðu á hreinu upplýsingar um blaðsíðufjölda, stærð og snið (harða eða mjúka kápu) bókarinnar, smásöluverð hennar og að það sé staðlaður smásölu afsláttur til bóksala. Upplýstu þá um að bókin sé fáanleg beint frá PublishIslandica og í gegnum heildsölur. Að sjálfsögðu þurfa þeir að vita nafn þitt ( höfundur), nafn bókarinnar og ISBN númer.

Fleiri hugmyndir

[Til baka]

Til viðbótar við bókaverslanir þá er tilvalið að hafa samband við kaffihús, listasöfn, háskóla, framhaldsskóla eða álíka stofnanir til þess að kynna þig. Slíkir staðir eru tilvaldir til upplestrar og það myndi vera ráðlegt fyrir þig að taka með þér eintök til þess að selja. Þú gætir einnig átt möguleika á að koma bókum til sölu í bóksölu framhaldsskólanna eftir að hafa boðið upp á upplestur.

Fylgstu með uppákomum sem eru á döfinni í það og það skipti! Söfn bjóða oftsinnis upp á bókmenntakynningar eða aðrar uppákomur af einni tegund eða annarri. Ef svo vill til gerðu þá ráðstafanir til þess að vera þar með eintök af bókinni til sölu og til áritunar.

Fyrir alla muni vertu vel undirbúinn! Ef þú ætlar að lesa upp æfðu þig þá vel, æfðu og æfðu. Því betur sem þú stendur þig þess meiri árangurs máttu vænta. Og sérhvert árangursríkt tilvik elur af sér betri árangur í næsta skipti. Lestu upp fyrir framan spegilinn eða fyrir maka þinn á hverju kvöldi í tvær vikur fyrir atburðinn. Og þegar stundin rennur upp leggðu þig þá fram um að brosa fyrir áheyrendur!

Að útbúa veggspjöld, flugrit, póstkort, bókamerki og svo framvegis af kápu bókarinnar getur verið gagnlegur miðill fyrir kynningu bókarinnar.

Þegar kápa bókarinnar hefur verið fullunnin af hönnunardeild okkar getur þú haft samband við helenl@publishamerica.com til þess að fá senda tölvutæka skrá af kápu bókarinnar. Þessa tölvutæku skrá er þá hægt að nota til þess að útbúa veggspjöld, flugrit póstkort, bókamerki o.þ.h. til auglýsinga. Slíka prenţjónustu er víđa hćgt ađ finna í nćsta nágrenni.